

Baldur bæjarstjóri hefur verið bæjarstjóri Latabæjar frá því elstu menn muna. Hann bauð sig ekki fram til bæjarstjóra eins og venja er, heldur tók hann starfið að sér þar sem enginn annar kærði sig um það.
Baldri bæjarstjóra finnst allt sem viðkemur Latabæ alveg hreint frábært. Hann er afar stoltur yfir því að bærinn sé fjörugasti staður í heimi, þrátt fyrir að nafnið gefi annað til kynna.
Hann er frá sér numinn af gleði yfir því að bærinn skuli eiga sína eigin ofurhetju, Íþróttaálfinn, sem vill enga leti og verndar bæjarbúa fyrir latasta ofurþrjótinum, honum Glanna glæp. Honum þykir samt vænst um krakkana í Latabæ og er tilbúinn til þess að gera allt fyrir þau.
Baldur bæjarstjóri gegnir ekki aðeins bæjarstjórastarfinu en hann á það til að bregða sér í ýmis önnur tilfallandi störf, eins og: bókavörð, póststjóra, bankastjóra og kaupmann, eða bara það sem vantar hverju sinni. Eins og gefur að skilja er hann oft og tíðum útkeyrður vegna anna en hann hugsar sem svo að ef að hann gengur ekki í verkin, hver annar í Latabæ ætti þá að gera það?
Baldur bæjarstjóri er leynilegur aðdáandi Stínu símalínu, en allar tilraunir hans til þess að nálgast hana enda oft á mjög vandræðalegan hátt. Baldur á það til að gera sín mistök en þrátt fyrir það bera allir krakkarnir í Latabæ mikla virðingu fyrir honum.




